Það urðu breytingar á stjórn mjóhundadeildar á aðalfundi í gærkvöldi.
Drífa Örvarsdóttir og Magnea Friðriksdóttir koma nýjar inn til tveggja ára, Sigrún Arna Friðriksdóttir og Vordís Sigurþórsdóttir ganga úr stjórninni eftir tveggja ára setu. Mjóhundadeildin þakkar þeim fyrir vel unnin störf.
 
 
Aðalfundur
Aðalfundur mjóhundadeildar verður haldinn í húsnæði HRFÍ að Síðumúla 15, mánudaginn 2. apríl n.k. kl. 20:00

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Ágrip deildarinnar frá 2011
2. Greint frá fjármálum deildarinnar
3. Kosning í stjórn
4. Önnur mál

Það eru tvö laus sæti í stjórn deildarinnar og óskum við eftir framboðum í stjórn, tekið verður á móti framboðum á aðalfundi. Þeir sem hyggjast bjóða sig fram verður gefið tækifæri til að kynna sig á fundinum.
 
 
Þeir sem sjá sér fært að koma með hundana sína á þessa kynningu eru beðnir að láta vita með því að senda skilaboð á mjohundar@gmail.com. til að hægt sé að skipuleggja helgina. Mjóhundadeildin vonar að sem flestir sjái sér fært að taka þátt.

Hundakynning í Garðheimum
Helgina 17. og 18. Mars.
Millistórir og stórir hundar

Stórir, stæðilegir og vinnusamir hundar.
Millistórir og stórir hundar í Garðheimum helgina 17 -18 mars.

Hundakynningar sem þessar eru orðnar fastur viðburður hjá Garðheimum.
Fjöldi hundaáhugafólks sækir kynningarnar á hverju ári og eru margir orðnir óþreyjufullir eftir næstu kynningu. Sífellt fleiri tegundir hafa verið kynntar til leiks í Garðheimum og er víst að um stórskemmtilega og afar líflega helgi verður að ræða.

Tilgangur kynningarinnar er að sýna almenningi fjölbreytileika hunda á Íslandi og að gefa fólki kost á að nálgast og fræðast um þessa hunda hjá eigendunum.

Kynningin er með millistórum og stórum hundum sem einungis og án undantekninga eru viðurkenndir af HRFÍ.

Kynningin verður haldin helgina 17. og 18 Mars. Hún er opin almenningi frá klukkan 12-17 báða dagana.

Vegna ábendinga vil ég koma því á framfæri að allir þeir sem vilja kynna sína tegund eiga að hafa samband við tengiliði eða stjórnarmenn sinnar deildar. Stjórnir eða tengiliðir viðkomandi deilda skipuleggja sín svæði og raða hundum niður á tíma.

Fyrir utan að kynnast æðislegum hundum verður nóg um að vera þessa helgi.

Sem dæmi má nefna:
Fóðurkynningar
Fóðurtilboð
Vörukynningar
Vörutilboð
Hunda-skemmtiatriði
Lukkupottar
Gleði, hamingja og bros á vör.....

Hafið hugfast að íslensk hundamenning batnar ár frá ári með betri skilningi almennings.





 
 
This is your new blog post. Click here and start typing, or drag in elements from the top bar.
 
 

Hér fyrir neðan er linkur með fréttatilkynningu HRFI um nýtt húsnæði.

http://www.hrfi.is/default.asp?Page=44

 
 
 
 
Góðan daginn

Ég kom við á alþjóðlegu hundasýningunni í reiðhöllinni í Víðidal á sunnudeginum 20. nóvember. Ég var með haustpest og hósta og gat því ekki dvalið allan daginn, en tók þó upp myndskeið af úrslitum (eru í tveimur hlutum), besta öldunginn og stigahæsta hundinn og öldunginn. Þetta er komið á Youtube með svipuðum hætti og sýningin 27. og 28. ágúst, en ég sendi ykkur tengla á þau myndskeið á sínum tíma.

Hér eru tenglar á atriðin:

Hluti 1 af 2 - Besti hundur sýningar á alþjóðlegri hundasýningu í reiðhöllinni Víðidal, 20. nóvember 2011.

Smelltu á tengilinn: http://youtu.be/L--sf97t6KY

Hluti 2 af 2 - Besti hundur sýningar á alþjóðlegri hundasýningu í reiðhöllinni Víðidal, 20. nóvember 2011.

Smelltu á tengilinn: http://youtu.be/oyVJACdeTlk

Besti öldungur sýningar á alþjóðlegri hundasýningu í reiðhöllinni Víðidal, 20. nóvember 2011.

Smelltu á tengilinn: http://youtu.be/CQK6CXLS-1E

Stigahæsti hundur og stigahæsti öldungur ársins 2011 - verðlaun veitt á alþjóðlegri hundasýningu í reiðhöllinni Víðidal, 20. nóvember 2011.

Smelltu á tengilinn: http://youtu.be/zq5PMzAm2Zc



Til að fá betri gæði, smellið á 360 og smellið upp í 480. einnig má smella á örvarnar tvær til að fá stærri mynd.

Til að eiga og geyma myndskeið, getið þið notað www.keepvid.com.

Njótið vel

Kveðja, Grípandi.

 
 

 
 
Saluki tíkin Seadis Grenoble endaði  sem besti hundur sýningar í þriðja sæti. (BOB,CC,Cacib BIG BIS 3)  og varð hún einnig Nýr meistari.

Afghan tíkin Maja sem er bara níu mánaða var önnur best í grúppu (BOB,CC BIG2)

CIB ISCH Álfadísar Drauma Ljósbrá varð þriðja best í grúppu (BOB BIG3)

Þá urðu til 2 aðrir nýir meistarar í deildinni en það voru þau:

Affietude King of Pride Rock (BR2,CC,V-Cacib)  og Álfadísar Drauma Dagbjört (BT2,CC, V-Cacib)

Nánar um úrslit fyrir neðan myndina:




Picture
Enigma Dreams Final Fantasy "Maja" og Sunna Líf
Dómari: Saija Juutilainen frá Finnlandi

Afghan

BOB,CC BIG2 Enigma Dreams Final Fantasy
BT2,Cacib ISCH Raffica´s Victoria´s I´ve Got A Secret
BT3 v-cacib Kinglseah Golden Topaz
BT4 Enigma Dreams Fatal Attraction

BOS CIB,ISCH Alphaville´s Stand By Me
BR2,CC,V-Cacib Nýr íslenskur meistari Affietude King of Pride Rock
BR3 Do We Really Need Thirteen
BR4 ISCH Anuskah Shadow dancer

Saluki

BOB,CC,Cacib BIG BIS 3Nýr meistari Seadis Grenoble
BT2 vara-cacib Gullmola Killer Queen.
BT3 Gehela´s Dadieh Malikah,
BT 4 Qirmizi Madison

BOS,CC Gullmola Bohemian Rapsody
BR2 Gullmola Dont stop me now
BR3,Cacib Chisobees Jared

 Whippet

BOB BIG3 CIB ISCH Álfadísar Drauma Ljósbrá
BT2 CC Nýr íslenskur meistari Álfadísar Drauma Dagbjört
BT3 ISCH Álfadísar Drauma Skíma

BOS Cacib Siprex Dante
BR2 CC vara Cacib Leifturs Strompur
BR3 Mossbawnhill Glory Bound

 
 

Sverrir Sv. hjá Grípanda tók upp hluta af sýningunni hjá Hundaræktarfélagi Íslands, sem var haldin í Reiðhöllinni í Víðidal 27. og 28. ágúst sl. 

hægt er að skoða myndböndin hérna inná http://www.youtube.com/hundasyning2728agust
Þeir sem hafa áhuga á að downloada myndbandinu inn á tölvuna hjá sér, geta náð í það á vefnum www.KeepVid.com. Þú nærð í slóðina á myndskeiðinu, copy og paste inn í gluggann á keepvid. Smellir á download og yes, svo geturðu hlaðið því niður.

kveðja Stjórnin.