Mjóhundadeild HRFÍ
  • Heim
  • Fréttir
  • Deildin
    • Fundargerðir
      • Eldri fundargerðir
      • Tegundir
        • Afghan Hound>
          • Um Tegundina
            • Innfluttir hundar
              • Hundar fæddir á Íslandi
              • Whippet>
                • Um Tegundina
                  • Innfluttir
                    • Fæddir á Íslandi
                    • Saluki>
                      • Um Tegundina
                        • Innfluttir
                          • Fæddir á Íslandi
                          • Írskur Úlfhundur>
                            • Um tegundina
                              • Innfluttir
                              • Hjartarhundur>
                                • Um Tegundina
                                  • Innfluttir
                                • Got
                                  • Væntanleg Got
                                    • Vantar Heimili
                                    • Sýningar
                                      • Sýningardagatal
                                        • Stigahæstu Mjóhundar>
                                          • Afghan Hound
                                            • Whippet
                                              • Saluki
                                                • Hjartarhundur
                                                • Úrslit Sýninga>
                                                  • Írskur Úlfhundur
                                                    • 2011
                                                      • 2010
                                                    • Beituhlaup (Lure Coursing)
                                                      • Almennt um Lure Coursing
                                                        • Lure Coursing Æfingar
                                                        • Tenglar
                                                          • Íslenskir Ræktendur
                                                            • Erlendir ræktendur
                                                              • Ræktunar Félög & Deildir
                                                                • Nytsamlegir Tenglar
                                                                • Mjóhundaspjallið
                                                                • Sýningaúrslit
                                                                  • 2011
                                                                    • 2010
                                                                    • Myndasafn
                                                                    • Greinar
                                                                      • Þegar hundurinn verður gamall
                                                                        • Glósur frá fyrirlestri Finn Boserup.
                                                                          • Hundanammi
                                                                            • Smáveirusótt og lifrarbólga - bólusetningar
                                                                            • Hafa samband
                                                                            Glósur frá fyrirlestri frá danska dýralæninum Finn Boserup sem er sérfræðingur í augnsjúkdómum.

                                                                            HRFÍ hefur fengið sérfræðinga til landsins tvisvar á ári í um 15 ár. Finn Boserup hefur verið fastagestur um þónokkuð skeið og það var því mikil ánægja að sitja á fyrirlestri hjá jafn virtum sérfræðingi og honum, sem þar að auki þekkir íslenska hunda á Íslandi svo vel. Maður eru stundum langþreyttur á því að reyna að staðfæra bandarískar rannsóknir á okkar litla land.

                                                                            Distichiasis er heitið yfir auka augnhárasett. Ef hundur þjáist af þessu vex rönd af auka augnhárum fyrir innan hin hefbundnu og þau vaxa oft innávið. Afleiðingin er að hár strjúka hornhimnuna og getur valdið miklum óþægindum fyrir hundinn. Ástandið er mjög líklega arfgengt en er þó hægt að laga með aðgerð. Þótt sjúkdómurinn sé vissulega óæskilegur, þá getur verið ástæða til að para hund með sjúkdóminn en þá bara með hreinum hundi. Sjúkdómurinn er ekki algengur í mjóhundum.

                                                                            Corneal dystrophy (Cornea = hornhimna) er eins og fleiri augnsjúkdómar safnnafn á nokkrum sjúkdómum. Algengast er að kólestról kristallast og getur haft mismikil áhrif á sjón hunda. Sjúkdómurinn er ekki sársaukafullur. Vitað er að sjúkdómurinn sé í eftirfarandi mjóhundum:

                                                                            • Afghanhundum
                                                                            • Ítölskum mjóhundum ? sést strax þegar þeir eru ungir
                                                                            • Whippet ? kemur um þriggja til fimm ára aldurs og er í miðju auganu
                                                                            Cherry eye er þegar tárkirtill bólgnar í þriðja augnlokinu. Það er óþægilegt fyrir hundinn og þarf að lagfæra með skurðaðgerð. Cherry eye er mjög líklega arfgeng. Ef hundurinn fær ekki aðgerð þegar ástandið kemst upp er líklegt að hann mun þjást af ?drye eyes? eða þurrum augum þegar hann eldist, þótt það geti tekið mörg ár að koma í ljós. Ástandið þekkist hjá mörgum tegundum og þá helst hjá hundum með pokaaugu eins og mastiff og bulldog. Forðum daga var kirtillinn hreinlega fjarlægður, en það veldur hundunum seinna meir mikil óþægindi og hætta á ýmiss konar ígerðum og öðrum kvillum, enda eru um 40% framleiðsla tára í þessum kirtili. Það þarf að setja kirtilinn aftur á sinn stað og sauma aftur.

                                                                            Cataract eða starblinda er til í mörgum gerðum og á mörgum stöðum í auganu. Hann er líka til hjá mannfólki. Sjúkdómurinn lýsir sér með því að hornhimnan verður móðukennd og hættir að vera gegnsæ. Á endanum verður hundurinn blindur. Þótt ákveðnar aðstæður eins og sykursýki, áfall eða líkamlegir áverkar geta valdið starblindu þá er hún í flestum tilfellum arfgeng. Þótt starblinda erfist, þá virðist framvinda starblindu ekki erfast. Þannig getur hundur með mjög milda starblindu getið af sér hvolpa sem verða blindir við eins árs aldur. Það er hægt að laga starblindu með aðgerð, en það er mjög dýrt og mjög flókið. Við flókna aðgerð má líka gera ráð fyrir að líkurnar séu minni á að hún heppnist. Hann benti líka réttilega á það að þótt maður geti læknað sjúkdóma, þá á maður að gera sér grein fyrir því að genin hafa ekkert breyst, hundurinn mun gefa af sér afkvæmi með sama sjúkdóm. Sennilega eru flest afbrigði starblindu víkjandi gen. Sjúkdómurinn er til í mörgum hundategundum.              

                                                                            Progressive retinal athrypy, PRA eða arfgeng vaxandi sjónrýrnun er arfgengur sjúkdómur sem leiðir til blindu, fyrst náttblindu en loks algjöra blindu. Til eru mörg afbrigði af PRA. Sjúkdómurinn veldur ekki sársauka hjá dýrinu en það er engin aðgerð eða lyf til að milda, eða lækna sjúkdóminn. Þessvegna ber að ekki nota dýr sýkt af PRA í ræktun. Hundar geta fengið PRA á mjög misjöfnum aldri. Það er hægt að DNA prufa sumar hundategundir, en þó ekki nærri allar. Það jákvæða við DNA prufur er að það er ekki einungis hægt að greina sýkta hunda, heldur líka bera og þannig er fyrr hægt að minnka útbreiðslu sjúkdómsins. PRA er til í mörgum hundategundum meðal annars Afghan.

                                                                            Retinal Dysplasia er til bæði sem Multifocal RD og geographical RD og í mörgum afbrigðum. Sýktur hundur sjúkdóminn frá fæðingu og það þarf því ekki að leita að því aftur. En sjúkdómurinn er arfgengur og ólæknanlegur. Í slæmum tilfellum losnar retina (partur af auganu) og hundurinn verður þá blindur á því auga. Sjúkdómurinn er til í mörgum hundategundum.

                                                                            Collie eye anomali CEA. Til eru tvær tegundir en fleiri útgáfur. Önnur er kölluð CRD eða CH og er til í 1., 2. og 3. stig þar sem þriðja er verst og svo Coloboma sem er alltaf mjög slæmt.  Til eru DNA-próf, en þar sem er ekki búið að finna genið heldur er þetta einhver langlókuleið, þá er það próf ekkert sérstaklega öruggt. Best er að athuga hunda þegar þeir eru 6-8 vikna því ef þeir eru með 1.stigs CRD þá er ekki víst að það greinist þegar hundur er orðin fullorðinn. En þar sem hundur með fyrsta stigs CRD má nota í rætkun þá kemur það kannski ekki að sök. Það á alls ekki að rækta undan hundi með þriðja stigs CRD eða Coloboma. Sjúkdómurinn er algengur í rough collie, en einnig til í aussie, sheltie, borde collie, smooth collie og kannski fleirum.

                                                                            Ég tók hann á eintal eftir fyrirlesturinn og var með tvær spurningar. Annarsvegar veit ég að sumir afghanræktendur telja hundana sína PRA fría ef þeir hafa ekki fengið PRA þegar þeir eru fimm ára gamlir. Hann mælti alls ekki á móti því að þeir yrðu athugaðir aftur seinna þar sem um mismunandi PRA gæti verið að ræða.  

                                                                            Hinsvegar var það um whippetinn. Nú er whippetinn með mjög góð augu, en þar sem sjúkdómar eru margir og við vitum ekki allt um sjúkdóma, mælti hann með því að fara með whippetinn í augntest líka. Það eru fáar línur hér og bara jákvætt að testa sem flesta hunda til að staðfesta að stofninn hér á landi sé frír af öllu ofannefndu.
                                                                            Höfundur.

                                                                            Kristín Þorvaldsdóttir

                                                                            Heimildir:

                                                                            Finn Boserup dýralæknir

                                                                            www.wikipedia.com


                                                                            Create a free website with Weebly