Mjóhundadeild HRFÍ
  • Heim
  • Fréttir
  • Deildin
    • Fundargerðir
      • Eldri fundargerðir
      • Tegundir
        • Afghan Hound>
          • Um Tegundina
            • Innfluttir hundar
              • Hundar fæddir á Íslandi
              • Whippet>
                • Um Tegundina
                  • Innfluttir
                    • Fæddir á Íslandi
                    • Saluki>
                      • Um Tegundina
                        • Innfluttir
                          • Fæddir á Íslandi
                          • Írskur Úlfhundur>
                            • Um tegundina
                              • Innfluttir
                              • Hjartarhundur>
                                • Um Tegundina
                                  • Innfluttir
                                • Got
                                  • Væntanleg Got
                                    • Vantar Heimili
                                    • Sýningar
                                      • Sýningardagatal
                                        • Stigahæstu Mjóhundar>
                                          • Afghan Hound
                                            • Whippet
                                              • Saluki
                                                • Hjartarhundur
                                                • Úrslit Sýninga>
                                                  • Írskur Úlfhundur
                                                    • 2011
                                                      • 2010
                                                    • Beituhlaup (Lure Coursing)
                                                      • Almennt um Lure Coursing
                                                        • Lure Coursing Æfingar
                                                        • Tenglar
                                                          • Íslenskir Ræktendur
                                                            • Erlendir ræktendur
                                                              • Ræktunar Félög & Deildir
                                                                • Nytsamlegir Tenglar
                                                                • Mjóhundaspjallið
                                                                • Sýningaúrslit
                                                                  • 2011
                                                                    • 2010
                                                                    • Myndasafn
                                                                    • Greinar
                                                                      • Þegar hundurinn verður gamall
                                                                        • Glósur frá fyrirlestri Finn Boserup.
                                                                          • Hundanammi
                                                                            • Smáveirusótt og lifrarbólga - bólusetningar
                                                                            • Hafa samband
                                                                            Einföld uppskrift að einu besta hundanammi í heimi :)  Algerlega án aukaefna og hentar því vel fyrir ofnæmispésa og hvolpa.

                                                                            Efni:
                                                                            2 heil lifur, naut, lamb eða annað

                                                                            Aðferð:
                                                                            Sjóðið í potti í ca 45 mínútur, skimið blóðið sem kemur ofan og blandið gjarnan við kvöldmat hundsins/hundanna.

                                                                            Skerið lifrina í frekar litla bita, ca á stærð við fóðurkúlu

                                                                            Dreifið lifrarbitunum á ofnplötu (ekki of mikið 1-2 lifur er alveg hámark) og bakið í ofninum á 100-125°í ca 3 klst.
                                                                            Hrærið reglulega (ca hálftíma fresti).
                                                                            Bakið í ca 10 mín í viðbót, en þá á 275° og með ofninn opinn að hluta. Passið vel að börn og hundar komi ekki nálægt ofninum. Með þessu eruð þið að loka bitunum og gera þá aðeins harða og þurra að utan. Þá eru þeir ekki klístraðir eins og lifrarpylsan og það er í góðu lagi að setja nammið beint í vasann og maður fær ekki íllalyktandi fingur. Tær snilld.

                                                                            Voilá! Nú eruð þið komin með frábæra nammibita, gott að nota við hverskyns þjálfun, sýningarþjálfun, hundafimi, inkallsæfingar... eða bara til að kaupa ást frá hundum sem eru dáldið feimnir og tilbaka. 

                                                                            Nammið geymist í nokkra daga í stofuhita (misvel eftir því hversu þurrir þeir eru) en ég geymi venjulega lagerinn í frysti. Eini gallinn er að þeir sem eru viðkvæmir fyrir lyktinni af soðinni og bakaðri lifur finnst húsið allt anga eftirá.



                                                                            Höfundur:
                                                                            Kristín Þorvaldsdóttir

                                                                            Create a free website with Weebly