Mjóhundadeild HRFÍ
  • Heim
  • Fréttir
  • Deildin
    • Fundargerðir
      • Eldri fundargerðir
      • Tegundir
        • Afghan Hound>
          • Um Tegundina
            • Innfluttir hundar
              • Hundar fæddir á Íslandi
              • Whippet>
                • Um Tegundina
                  • Innfluttir
                    • Fæddir á Íslandi
                    • Saluki>
                      • Um Tegundina
                        • Innfluttir
                          • Fæddir á Íslandi
                          • Írskur Úlfhundur>
                            • Um tegundina
                              • Innfluttir
                              • Hjartarhundur>
                                • Um Tegundina
                                  • Innfluttir
                                • Got
                                  • Væntanleg Got
                                    • Vantar Heimili
                                    • Sýningar
                                      • Sýningardagatal
                                        • Stigahæstu Mjóhundar>
                                          • Afghan Hound
                                            • Whippet
                                              • Saluki
                                                • Hjartarhundur
                                                • Úrslit Sýninga>
                                                  • Írskur Úlfhundur
                                                    • 2011
                                                      • 2010
                                                    • Beituhlaup (Lure Coursing)
                                                      • Almennt um Lure Coursing
                                                        • Lure Coursing Æfingar
                                                        • Tenglar
                                                          • Íslenskir Ræktendur
                                                            • Erlendir ræktendur
                                                              • Ræktunar Félög & Deildir
                                                                • Nytsamlegir Tenglar
                                                                • Mjóhundaspjallið
                                                                • Sýningaúrslit
                                                                  • 2011
                                                                    • 2010
                                                                    • Myndasafn
                                                                    • Greinar
                                                                      • Þegar hundurinn verður gamall
                                                                        • Glósur frá fyrirlestri Finn Boserup.
                                                                          • Hundanammi
                                                                            • Smáveirusótt og lifrarbólga - bólusetningar
                                                                            • Hafa samband

                                                                            Afgahn Hound

                                                                            Tengiliður Afghan hound: Ásta María Guðbergsdóttir
                                                                            Netfang: papillon_asta(hja)yahoo.com
                                                                             Gsm: 660-8504
                                                                            Tegundarlýsing Afghan hound samkvæmt FCI (smellið hér) 


                                                                             

                                                                            Picture
                                                                            Afghan hound er oft kallaður konungur eða aristókrati hundanna enda einstaklega tignarleg tegund og í flestum lýsingum sem finna má um þessa einstöku tegund er talað um að afghaninn horfi "at and through you" eða á og í gegnum þig. Augu þessara hunda eru sérstök en þau eru þríhyrningslaga með austurlensku yfirbragði. Tegundin er þekkt fyrir sínar sérstöku hreyfingar og tignarlegan höfuðburð en þegar Afghaninn hreyfir sig með fjaðrandi hreyfingum er eins og hann hlaupi á skýi. Skottið er beint, reist á hreyfingu, með litlum hring á endanum.

                                                                            Feldurinn er eitt helsta tegundareinkenni þessara hunda. Feldurinn er stuttur á hálsi, andliti og eftir bakinu en það svæði er kallað söðull. Annars staðar er feldurinn langur og silkikenndur. Allir litir eru leyfilegir. Tegundin tilheyrir tegundahópi 10.

                                                                            Afghan-hvolpar eru oft mjög fyrirferðarmiklir og uppátækjasamir. Með aldrinum róast þeir þó yfirleitt og eru góðir fjölskylduhundar og þægilegir í umgengni. Á heimilinu fer ekki mikið fyrir þeim og eru þeir oftar en ekki algjör sófadýr! Ef þeim hins vegar leiðist, geta þeir tekið upp á ýmsu til að fá athygli, og þá er eins gott að hafa varann á.

                                                                            Arfgengir sjúkdómar eru ekki algengir í tegundinni


                                                                            Uppruni

                                                                             

                                                                            Afghan hound er ein af elstu hundategundum í heiminum. Eins og með svo margar tegundir eru til nokkrar kenningar um uppruna hans. Sögur segja að Afghaninn hafi verið hinn útvaldi af hundategundum til að fara í örkina hans Nóa. Fornleifafræðingar áætla að Afghan hundurinn hafi verið til fyrir allt að 7000 árum síðan. Sumir telja að Saluki hundurinn hafi verið tekinn frá Sýrlandi til Afghanistan þar sem hann hafi aðlagast aðstæðum bæði á fjöllum og í eyðimörkinni og breyst og þróast samkvæmt því. 

                                                                            Nútíma Afghan hins vestræna heims kemur frá Afghanistan en þar voru til tvö tegundarafbrigði, eyðimerkurafbrigðið og fjallaafbrigðið en munurinn á þeim fólst aðeins í feldgerð. Eyðimerkurafbrigðið var með mun styttri og þynnri feld en fjallaafbrigðið með langan og þykkan feld. Þeir veiddu alls kyns dýr, t.d. kanínur, antilópur, dádýr og stundum jafnvel snæhlébarða! Þeir veiddu bæði tveir og tveir saman og í samvinnu við mennina. Stundum voru þeir látnir gæta kinda og smala.

                                                                            Nú sem áður er Afghaninn notaður sem veiðihundur í Afghanistan. Hann er orðinn mjög vinsæll meðal hundaáhugafólks um allan heim og er oft fjölmennur á hundasýningum. Margir þjálfa hundana sína í veðhlaupum "track racing" og beituhlaupi "lure coursing" og keppa í þessum greinum enda Afghaninn afar hraðskreið tegund. 

                                                                            Oftar en ekki lendir tegundin neðarlega á listum yfir gáfuðustu tegundir heims en allir eigendur þessara hunda eru sammála um það að tegundin er bráðgáfuð! Afghaninn hlýðir oft bara þegar honum hentar og ef hann er viss um að hann græði eitthvað á því sem hann er beðinn um að gera. Samt sem áður eru margir eigendur þessara hunda sem þjálfa þá í hlýðni og þá oft með góðum árangri.


                                                                            Umhirða/feldhirða

                                                                            Picture
                                                                            Ljósmynd: Una Sigurðardóttir
                                                                            Afghaninn þarfnast mikillar feldhirðu. Vikulegt bað og blástur er nauðsynlegt sem og burstun þegar þörf er á. Feldurinn getur verið erfiður á þeim tíma sem hundurinn skiptir úr hvolpafeld yfir í fullorðinsfeld og flækist oft auðveldlega. Stundum vaxa löng hár á svæðum þar sem hárin eiga að vera stutt og þá þarf að reyta þau hár burt.


                                                                            Hreyfing

                                                                            Picture
                                                                            Ljósmynd: Birna Willard
                                                                            Afghaninn þarf daglega hreyfingu í um klukkustund í senn. Þeim finnst mjög gaman að hlaupa lausir á opnum svæðum en gæta þarf þess að hafa þá undir góðri stjórn. Ef Afghan sér kanínu eða annað smádýr hlaupa, þá hleypur hann á eftir því þar til hann nær því, enda er veiðihvötin mjög sterk í þessum hundum!


                                                                            Afgan á Íslandi

                                                                            Picture
                                                                            Ljósmynd: Birna Willard
                                                                            Fyrsti Afghaninn, rakkinn C.I.B. ISCH Summerstorm´s Bad To The Bone "Ómar", kom til Íslands árið 2002 frá Svíþjóð. Árið 2005 kom svo fyrsta tíkin til landsins frá Finnlandi, C.I.B. ISCH Punapaulan Yasmin "Chelsea". Í ársbyrjun 2006 kom svo tíkin Xciting Stop´n Stare "Chanel" frá Svíþjóð. Þá kom rakkinn C.I.B. FIN CH DK CH ISCH NORD CH Punapaulan Oleksi "Ollie" frá Finnlandi. Smám saman hefur svo fjölgað í stofninum á Íslandi og hafa hundar aðallega verið fluttir inn frá Skandinavíu, Spáni og Bandaríkjunum. Hingað til hefur tegundinni gengið mjög vel á sýningum HRFÍ.




                                                                            Heimildir

                                                                            Vefsíður
                                                                            www.afghan-hound.net

                                                                            http://www.afghanhoundsinternational.net/
                                                                            http://ourworld.compuserve.com/homepages/s_tillotson/menu.htm

                                                                            Bækur:
                                                                            The Afghan hound eftir Lyndu Race
                                                                            The Complete Afghan Hound eftir Constance O Miller og Edward M Gilbert, Jr.


                                                                            Tekið saman af Auði Sif Sigurgeirsdóttur og Ástu Maríu Guðbergsdóttur, stoltum eigendum afghan hundanna Punapaulan Yasmin og Punapaulan Oleksi




                                                                            Create a free website with Weebly